Erfitt að verða við séróskum foreldra
Séróskum um mataræði leikskólabarna hefur nú fjölgað mikið á síðastliðnum fimm árum. Þetta kom fram á fundi hjá Félagi stjórnenda leikskóla í vikunni en víða eru jafnvel eldaðar þrjár máltíðir til að geta komið til móts við alla.
