Þrjú börn ættleidd til einhleypra á árinu

Tvær íslenskar, einhleypar konur hafa ættleitt börn erlendis frá á þessu ári.
Sú þriðja fær sitt barn í hendurnar innan skamms. Þetta eru fyrstu ættleiðingar einhleypra hingað til lands frá árinu 2007, en ættleiðingarnar stöðvuðust þá vegna breytinga á reglum í Kína.
