Ilmvatn úr vatni Eyjafjallajökuls á alþjóðamarkað
„Ég held að þetta sé fyrsta íslenska ilmvatnið sem fer í almenna sölu. Það var reyndar íslensk listakona, Andrea Maack, sem bjó til ilmvatn á þessu ári og hafði það hluta af gjörningi,” segir Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, oftast kennd við tískuvörumerkið Gyðju. Hún hyggst setja á markað ilmvatnið EFJ Eyjafjallajökull sem er framleitt úr vatni jökulsins.
