Fetar í fótspor stóru systur.

Sumarstúlka Vestmannaeyja var valin í Höllinni í Eyjum síðasta laugardagskvöld og var sigurvegari keppninnar hin átján ára gamla Elín Sólborg Eyjólfsdóttir. Þetta er í tuttugasta og fjórða skipti sem keppnin er haldin, en hún fer fram hvert sumar.
