Ánægja með þjónustu dagforeldra í hafnarfirði
Samkvæmt nýlegri viðhorfskönnun sem gerð var meðal foreldra barna í vistun dagforeldra eru 95% foreldra ánægðir eða mjög ánægðir með þjónustu þeirra. Rúmlega 50% aðspurðra tóku þátt í könnuninni eða 92 foreldrar. Hér í Hafnarfirði er stór hópur dagforeldra sem veita samfélaginu þessa mikilvægu þjónustu og hafa margir þeirra starfað árum saman.
