leikskolavist

Tveggja ára börnum tryggð leikskólavist í Reykjavík

leikskolavistBorgarráð ákvað á fundi sínum í dag að fjölga leikskólaplássum í Reykjavík svo hægt sé að bjóða öllum börnum sem verða tveggja ára á árinu leikskólapláss í haust eins og stefna og starfsáætlun Reykjavíkurborgar kveður á um. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, lagði tillöguna fram. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg.