ung modir

Ung móðir í hremmingum

ung modir Eva Rún Sigurðardóttir er í níunda bekk í grunnskóla. Í lok febrúar eignaðist hún lítinn dreng sem ber nafnið Róbert Leó. Fæðingin var ekki hluti af framtíðaráætlunum hennar enda var hún búin að fá getnaðarvarnarpillu hjá lækni til að koma í veg fyrir slíkt. Þegar hún komst að því að hún ætti von á barni þrátt fyrir varúðarráðstafanir vildi hún þó ekki fara í fóstureyðingu.