Gjaldskrá 2024 vegna niðurgreiðslu gjalda vegna barna hjá dagforeldrum:

Hjón og sambúðarfólk (foreldrar/forráðamenn)
Mánaðarleg greiðsla skal taka mið af dvalartíma barns. Niðurgreiðslan miðast við 11.500 kr./klst.

4 klst. Kr. 46.000
5 klst. Kr. 57.500
6 klst. Kr. 69.000
7 klst. Kr. 80.500
8 klst. Kr. 92.000

Einstæðir foreldrar eða báðir foreldrar í námi

Mánaðarleg greiðsla skal taka mið af dvalartíma barns. Niðurgreiðslan miðast við 12.500 kr./klst.

4 klst. Kr. 50.000
5 klst. Kr. 62.500
6 klst. Kr. 75.000
7 klst. Kr. 87.500
8 klst. Kr. 100.000

Sjá nánar reglur um niðurgreiðslu gjalda vegna barna hjá dagforeldrum:
Veittur er systkinaafsláttur 30% með öðru barni og 50% með þriðja barni.

Systkinaafsláttur nær yfir þjónustu Frístundaheimilis, leikskólaþjónustu og þjónustu dagforeldra. Ef
barn er hjá dagforeldri og systkin þess á leikskóla/Frístundaheimili er systkinaafsláttur veittur af
leikskólagjaldinu/Frístundaheimilisgjaldinu.

Foreldrum sem stunda dagnám er veittur afsláttur af leikskólagjaldi og greiða þeir samkvæmt
forgangsgjaldi sem er greiðsla fyrir börn einstæðra foreldra og nemur afslátturinn 30% af fullu gjaldi.
Einstæðir foreldrar njóta ekki jafnframt námsmannaafsláttar. (Ath. Afsláttur af leikskólagjaldi er
aðeins veittur ef viðkomandi stundar nám sem er a.m.k. 24 ECTS einingar á önn).

Sækja þarf um afsláttinn til leikskólastjóra eða hjá velferd@olfus.is fyrir skólaárið og leggja fram
staðfestingu frá skóla um að viðkomandi hafi fengið skólavist og staðfestingu á fjölda eininga á önn.
Afslátturinn fellur sjálfkrafa niður í lok maí. Sækja þarf um niðurfellingu fyrir 1. september, ásamt því
að endurnýja fyrri umsóknir.

Reglur þessar voru samþykktar af fjölskyldu- og fræðslunefnd þann 20.06.2024 og staðfestar af
bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfus þann 27.06.2024 og miðast gildistaka við þann dag er bæjarstjórn
staðfesti reglurnar.

Sjá á ölfus